Sunna Gautadóttir
mánudagur, 6. febrúar 2012
þriðjudagur, 31. janúar 2012
fimmtudagur, 26. janúar 2012
þriðjudagur, 24. janúar 2012
26. desember 2011
Við fjölskyldan skelltum okkur norður um jólin - heim í Miðkot til elsku ömmu og afa og áttum yndislega daga þar. Ég tók myndavélina að sjálfsögðu með og fór m.a. tvo daga í röð til Ingunnar og co til þess að taka jólamyndir af frænkuskottunum mínum þeim Örnu Dögg og Sunnu Lind. Hér koma nokkrar myndir frá fyrri deginum, 26. desember, en fleiri er að finna á Flickr.
föstudagur, 6. janúar 2012
Filippía Svava og Unnur
Einn góðan veðurdag, síðastliðið haust, fór ég með Filippíu systur og Unni vinkonu hennar í Skallagrímsgarð vopnuð myndavélinni og reflector. Sólin skein, haustlitirnir voru æðislegir og var þetta því frábært tækifæri til að smella af nokkrum myndum. Garðurinn, með öllum sínum trjám, var tilvalinn staður sem bauð upp á ofsalega fallega bakgrunna og flott bokeh.



þriðjudagur, 3. janúar 2012
Norðurljós
Þann 31. október 2011 prófaði ég í fyrsta sinn að taka myndir af norðurljósum með fimmunni minni (Canon EOS 5D). Ég hafði áður nokkrum sinnum myndað ljós með gömlu Olympus vélinni en það var æðislegt að láta loksins reyna á draumavélina, enda mikill munur á gæðum!



Sorg
Eitt verkefni sem ég gerði í skólanum á síðustu önn snerist um að taka sex myndir af sama hugtakinu. Við höfðum val á milli sex hugtaka og ég valdi „sorg“. Fyrri myndin sem ég set hér inn er ein af þeim sem ég notaði í verkefnið og sú sem ég er ánægðust með. Þá seinni tók ég sama dag, þegar ég var í þessum sömu hugleiðingum, en endaði reyndar á því að nota hana ekki í sjálft verkefnið.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)